Vesturhlíð 7 · Reykjavík

Róin er úti.
Krafturinn er inni.

Skrifborð og skrifstofur í gömlu kapellunni í Fossvogi. Opnum í nóvember 2026.

Bóka skoðun Frá 65.000 kr. + vsk. á borð
Kapellan í Vesturhlíð 7, með Perluna á sjóndeildarhringnum
Nóg af bílastæðumEldhús Skógurinn og tjörnin að bakiOpnum í nóvember 2026

Teikningin

Skoðaðu húsið

Á milli lífs
og dauða

Fimm mínútur frá miðbænum, við rætur Öskjuhlíðar. Skógurinn, tjörnin og ylströndin í Nauthólsvík eru í göngufæri — græn svæði sem veita innblástur.

Tjörnin að baki hússins Gæsir á tjörninni Skálinn að innan

Skógurinn

Hádegishlaupið byrjar við dyrnar

Stígarnir í Öskjuhlíð liggja frá bílastæðinu beint inn í skóginn. Sturtuaðstaða er í húsinu — hlauptu í hádeginu eða hjólaðu í vinnuna.

Hlaupari á skógarstíg í Öskjuhlíð — teikning
Öskjuhlíð

Staðurinn

Nærumhverfi

Í miðri borg – en samt alveg út af fyrir sig. Mínúta frá Bústaðavegi.

Teiknað kort af nágrenni Vesturhlíðar 7 Perlan Öskjuhlíð Tjörnin Kapellan Fossvogskirkjugarður Bústaðavegur
  • Bústaðavegur1 mín. akstur
  • Öskjuhlíðskógarstígar2 mín. ganga
  • Nauthólsvíkylströndum 12 mín. ganga
  • Perlanum 12 mín. ganga
  • Fossvogsdalurhjólastígurum 5 mín. ganga
  • Miðbærinnum 5 mín. akstur
SkógurÖskjuhlíð
YlströndNauthólsvík
Perlaná hæðinni
HjólastígurFossvogsdalur
Miðbærinn5 mín. akstur

Rýmin

Rýmin í húsinu

Opið vinnurými — hugmynd að útfærsluHugmynd að útfærslu
Opið vinnurými

44 föst borð

Salarhæð 3,4–5,4 m

Frá 65.000 kr. + vsk. á borð
Einkaskrifstofa — hugmynd að útfærsluHugmynd að útfærslu
Einkaskrifstofur

6–8 manna

Læstar skrifstofur með eigin hurð

Frá 85.000 kr. + vsk. á mann
Skálinn — hugmynd að útfærsluHugmynd að útfærslu
Kaffihús

Kaffihús og blómaverslun í Kapellunni

Blómstra rekur kaffihús og verslun í skálanum — gott kaffi og innblástur úr blómaríkinu.

Opið öllum í húsinu

Verð

Einfalt verð, ekkert falið

Fast borð í opnu rými

frá 65.000 kr. + vsk.
á borð á mánuði — allt innifalið
  • 65.000 kr. á millipalli, 75.000 kr. á jarðhæð
  • Net, rafmagn, hiti og þrif
  • Fundarherbergi og símaklefar
  • Aðgangur allan sólarhringinn

Einkaskrifstofa

frá 85.000 kr. + vsk.
á mann á mánuði — allt innifalið
  • Fyrir 6–8 manna teymi, með eigin hurð
  • Þín eigin lokaða skrifstofa — og samfélagið handan hurðarinnar
  • Öll sameiginleg aðstaða og þjónusta innifalin

Róleg einkaskrifstofa

frá 70.000 kr. + vsk.
á mann á mánuði — allt innifalið
  • 6 manna, á millipalli með eigin stiga
  • Næði fyrir djúpvinnu í rólegasta hluta hússins
  • Öll sameiginleg aðstaða og þjónusta innifalin

Glerskrifstofur í opna rýminu eru byggðar eftir pöntun. Auðvelt er að fjölga borðum.

Í húsinu

— ásamt Vínklúbbnum.

Opnum í nóvember 2026

Borðin eru 44.

Átta stuttar spurningar og þú ert á forgangslistanum — við höfum samband þegar hægt er að festa borð.

Skrá mig á forgangslistann

Spurt og svarað

Hvað er innifalið í verðinu?

Allt: nettenging, rafmagn, hiti, þrif, fundarherbergi, símaklefar, kaffistofa, póstfang og fyrirtækjaskráning — og sódavatnið.

Hvenær get ég flutt inn?

Húsið verður formlega opnað í nóvember 2026 og mögulega fyrr fyrir þau fyrstu á listanum.

Hvar er Kapellan?

Í Vesturhlíð 7, við rætur Öskjuhlíðar. Fimm mínútna akstur er í miðbæinn, 35 ókeypis bílastæði eru við húsið og skógurinn tekur við af bílastæðinu.